Færsluflokkur: Bækur
18.11.2008 | 09:24
Hvers virði er þjóðerni?
Á sunnudaginn 16. nóvember fékk fyrsti Tíbetinn sem flutti til Íslands ríkisborgararéttindi sem voru henni með sanni gleðiefni. En einn óþarfa skugga bar þar á. Mannréttindabrot sem íslensk stjórnsýsla neitaði að laga, þrátt fyrir einlæga ósk þessa nýja ríkisborgara okkar. Kona þessi var fædd í Tíbet en flúði þegar hún var barn að aldri með foreldrum sínum og systkinum frá Tíbet til Indlands.
Hún bað um að hún væri skilgreind á pappírum hérlendis sem og í vegabréfi sínu sem að hennar þjóðerni yrði skráð sem Tíbeti en þess var krafist af okkar stjórnsýslu að hún yrði skráð sem Kínverji og að hún væri fædd í Kína. Víða annarsstaðar eru Tíbetar þeir sem fæddir eru í Tíbet skilgreindir sem þeir séu frá Tíbet og bætt við að það sé í kínverska alþýðulýðveldinu. Hún bað um að upplýsingarnar um hana innihéldu einhversstaðar að hún væri frá Tíbet. Enn þráuðust íslenskir embættismenn við og neituðu henni alfarið með kunnuglegum loðintungu afsökunum.
Tökum nærtæk dæmi svo fólk skilji hve alvarlegt brot þetta er á mannréttindum þessarar konu til að friðþægja kínversk yfirvöld enn og aftur. Þegar við vorum nýlenda Dana, þá er mér stórlega efins um að ef Íslendingur sótti um ríkisborgararéttindi segjum í Bandaríkjunum að hann hafi verið skráður sem Dani en ekki Íslendingur. Tíbet var hernumið og Tíbetar berjast fyrir því að deyja ekki út sem þjóð og verndun menningu sína. Nú búa fleiri Kínverjar í Tíbet en Tíbetar. Það er smánarlegt að við getum ekki gefið þessari konu sem hefur unnið hörðum höndum hérlendis alla tíð og lagt sitt inn í samfélagið okkar, það vinarbragð að leyfa henni að halda einhverju jafn dýrmætu og þjóðerni sínu. Það ættum við að þekkja sjálf sem eitthvað mikilvægt og dýrmætt.
Því miður er öll stjórnsýsla þessa lands í svo miklum lamasessi að lítið þýðir að tala við yfirmenn landsins um þetta mál. En ég ætla að gera mitt þegar um hægist að hjálpa þessari yndislegu konu að fá að vera skilgreind sem Tíbeti en ekki Kínverji.
Ást og virðing, Birgitta
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2008 | 07:34
Mengun í Tíbet
Kínversk yfirvöld hafa ákveðið að leggja nokkra milljarða dollara í frekari álvers, báxítnámur og annan námugröft í Tíbet. Nú þegar er búið að höggva niður nánast alla gömlu skógana í Austur-Tíbet, en þeir voru gríðarlega stórir og fornir. Talið er að ein af ástæðum hinna miklu flóða á láglendinu megi rekja til skógarlausra fjallshlíða í Austur-Tíbet.
Þeir ætla að skapa um 17.000 ný störf sem verða flest mönnuð Han-kínverjum. Vekur þessi ákvörðun enn meira vonleysi meðal útlægra Tíbet um að fá tækifæri á að snúa aftur heim og ótta um að menning þeirra muni með öllu glatast. Það er mikilvægt að fólk hafi í huga að nú þegar eru Tíbetar í minnihluta í sínu eigin landi.
Umhverfisverndarsinnar eða umhverfisvísindamenn hafa ekki aðgang að Tíbet til að meta ástandið, en vitað er að landið hefur meðal annars verið notað fyrir kjarnorkuúrgang og feikilega stórar báxítnámur eru í grennd við Lhasa. Það lítur út fyrir að það eigi að gera við Tíbet eins og var gert við héraðið Orissa á Indlandi- það er nánast ekkert hreint vatn eftir þar og mikið samansafn stóriðju, sér í lagi álvera og báxítnáma.
Fann eina áhugaverða grein um mengun í vatni í Tíbet: http://www.futurewater.nl/uk/projects/tibet
Markmið Vina Tíbets er að afla upplýsinga og setja upp eins konar bókasafn með tíð og tíma sem og eilítið safn heimildamynda og kvikmynda er tengjast Tíbet. Hægt er að kíkja á nokkrar nýjar myndir í slóðasafninu hér til vinstri.
Ef einhver hefur vitneskju um bækur, rit, kvikmyndir sem taka sérstaklega á umhverfismálum í Tíbet, þá endilega látið okkur vita.
Bækur | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Tíbet
- Dalai Lama á Íslandi
- Save Tibet - fréttir og fróðleikur
- Fréttir frá Tíbet
- Tibetan Writers
- Students for a Free Tibet
- Leaving Fear Behind
- Tibet Info Net
- Undercover in Tibet
- Cry of the Snow Lion
- Raddir fyrir Tíbet
- Ljósahátíðin á Youtube
- Tibetan Photo Project
- Útlagastjórn Tíbets
- Silent Message
- Vinir Tíbets á Flickr
- Undirskrifarlisti beint til IOC Olympic Committee: Stop Playing China's Games!
- Tibet Art Movement
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- Birgitta Jónsdóttir
- Björgvin Guðmundsson
- Egill Bjarnason
- Einar Ólafsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gils N. Eggerz
- Goggi
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Heiða Þórðar
- Hlynur Hallsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján Kristjánsson
- Neddi
- Perla
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurður Hrellir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Dorje
- Eva G. S.
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Heimir Tómasson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Máni Ragnar Svansson
- Sigurður M Grétarsson
- Þórhildur og Kristín